Bon appetit!
Showing posts with label hvítvín. Show all posts
Showing posts with label hvítvín. Show all posts
Saturday, 18 March 2017
Frábær fiskiveisla; Steikt hrogn með chimmichurry, djúpsteiktar gellur með myntujógúrtsósu og svo kræklingur með marglitum papríkum
Þessi fiskiveisla var á Ínn núna í vikunni.
Bon appetit!
Bon appetit!
Labels:
bjór,
chimmichurry,
djúpsteiktar gellur,
el gordo,
fiskiveisla,
gellur,
hrogn,
hvítvín,
Kræklingur
Location:
Árbær, Reykjavík, Iceland
Tuesday, 17 January 2017
Rósmarín-stjaksett langa með rauðlauk, hvítvíni og kirsuberjatómötum
Ég var að blaða í bókinni minni, Veislunni endalausu, sem kom út fyrir jólin 2014 og rifjaði þá upp þessa uppskrift sem ég hafði ekki gert um alllangt skeið. Það var því tilvalið að rifja þessa uppskrift upp.
Rósmarín-stjaksett langa með rauðlauk, hvítvíni og kirsuberjatómötum
Rósmarín tengir maður einna helst við kjötrétti, en ég hef verið að prófa mig aðeins áfram með að nota það með fiski. Fyrst með skötusel og var alls ekki svikinn. Og það er í raun ekkert mál að nota skötusel í staðinn fyrir löngu í þennan rétt – það kemur bara aðeins meira við budduna.
Blálanga er fiskur sem hentar ákaflega vel að snöggelda því að hún heldur sér vel og minnir gjarnan á steik undir tönn þegar rétt hefur verið farið með hana. Lengi vel var þessum gómsæta fiski hent þegar hann kom í veiðarfærin þar sem hann var ekki talinn hæfur til manneldis. Sem betur fer höfum við þroskast – ekki bara sem veiðiþjóð heldur líka sem nautnaseggir. Og blálangan fellur sko vel að því!
Fyrir fjóra
800 g langa
8 rósmaríngreinar
6-8 msk hveiti
salt og pipar
1 rauðlaukur
1 hvítlauksrif
4 msk jómfrúarolía
1 hvítvínsglas
safi úr hálfri sítrónu
1 msk smjör
400 g kirsuberjatómatar
Skerið rauðlauk og hvítlauk smátt og steikið í olíunni þar til hann er mjúkur og glansandi. Setjið til hliðar.
Skerið fiskinn í fjóra bita. Tálgið rósmaríngreinarnar þannig að annar endinn verði hvass líkt og spjót.
Stingið svo rósmarínspjótunum langsum eftir fiskstykkjunum. Saltið og piprið.
Veltið fisknum upp úr bragðbættu hveiti (með salti og pipar) og steikið í tvær til þrjár mínútur upp úr olíu á hvorri hlið á vel heitri pönnu.
Bætið tómötunum á pönnuna og setjið laukinn aftur út í.
Hellið hvítvíni yfir og sjóðið upp áfengið. Bætið sítrónusafa við og svo smjöri.
Berið fram með nýjum kartöflum og góðu hvítvíni.
Rósmarín tengir maður einna helst við kjötrétti, en ég hef verið að prófa mig aðeins áfram með að nota það með fiski. Fyrst með skötusel og var alls ekki svikinn. Og það er í raun ekkert mál að nota skötusel í staðinn fyrir löngu í þennan rétt – það kemur bara aðeins meira við budduna.
Blálanga er fiskur sem hentar ákaflega vel að snöggelda því að hún heldur sér vel og minnir gjarnan á steik undir tönn þegar rétt hefur verið farið með hana. Lengi vel var þessum gómsæta fiski hent þegar hann kom í veiðarfærin þar sem hann var ekki talinn hæfur til manneldis. Sem betur fer höfum við þroskast – ekki bara sem veiðiþjóð heldur líka sem nautnaseggir. Og blálangan fellur sko vel að því!
Fyrir fjóra
800 g langa
8 rósmaríngreinar
6-8 msk hveiti
salt og pipar
1 rauðlaukur
1 hvítlauksrif
4 msk jómfrúarolía
1 hvítvínsglas
safi úr hálfri sítrónu
1 msk smjör
400 g kirsuberjatómatar
Skerið rauðlauk og hvítlauk smátt og steikið í olíunni þar til hann er mjúkur og glansandi. Setjið til hliðar.
Skerið fiskinn í fjóra bita. Tálgið rósmaríngreinarnar þannig að annar endinn verði hvass líkt og spjót.
Stingið svo rósmarínspjótunum langsum eftir fiskstykkjunum. Saltið og piprið.
Veltið fisknum upp úr bragðbættu hveiti (með salti og pipar) og steikið í tvær til þrjár mínútur upp úr olíu á hvorri hlið á vel heitri pönnu.
Bætið tómötunum á pönnuna og setjið laukinn aftur út í.
Hellið hvítvíni yfir og sjóðið upp áfengið. Bætið sítrónusafa við og svo smjöri.
Berið fram með nýjum kartöflum og góðu hvítvíni.
Labels:
fiskur,
hversdagsmatur,
hvítvín,
kirsuberjatómatar,
Langa,
rauðlaukur,
rósmarín,
stjaksett
Location:
Árbær, Reykjavík, Iceland
Thursday, 5 December 2013
Pönnusteiktar kjúklingabringur í hvítvínssoðsósu með ferskum tómötum og svörtum kalamata ólívum!
Ég rataði á þessa hugmynd í morgun þegar ég horfði inn í ísskápinn sem mér fannst heldur fátæklegur að þessu sinni - ekki mikið til! En þá er gott að reyna að liðka aðeins fyrir ímyndundaraflinu og bara einbeita sér að því sem er til. Ég fann tvær öskjur af litlum plómutómötum út í glugga og svo hálfa krukku af kalamataólívum í ísskápnum. Átti nokkrar kjúklingabringur í frystinum. Og þá var það bara ákveðið. Einfalt og laggott! Og ef hráefnið er gott þá eru ekki miklar líkur á því að þetta muni misheppnast.
Margir af réttunum mínum eru með þeim hætti að hráefnalistinn er stuttur en það þýðir að leggja þarf áherslu á að vera með vandað hráefni - svo maturinn verði ljúffengur. Sé þeim kröfum mætt er eftirleikurinn einfaldur.
Ég trúi því varla að það sé kominn desember. Ég er sannfærður að við erum fleiri í þessum sporum. Hvernig má það vera að tíminn þjóti svona hratt framhjá manni. Bara fyrir korteri (1. nóvember) var ég á Íslandi að kynna bókina mína. Fyrir hálftíma (16. október) fékk ég bókina mína í hendurnar. Fyrir þremur korterum lauk ég við að skrifa hana og fyrir rétt rúmum klukkutíma ákváðum við að gera þessa bók. Djísus hvað tíminn flýgur! Eins gott að vera duglegur að njóta hans!
Pönnusteiktar kjúklingabringur í hvítvínssoðsósu með ferskum tómötum og svörtum kalamata ólívum!
Innihaldslýsing
4 kjúklingabringur
4 hvítlauksrif
1 gulur laukur
50 gr smjör
350 gr litlir plómutómatar
20-30 kalamataólívur
1 lárviðarlauf
100 ml hvítvín
300 ml kjúklingasoð
1 tsk hökkuð steinselja
1 msk kapers
salt og pipar
Meðlæti
Hrísgrjón
Salat með iceberg, lárperu, rauðlauk, gúrku og fetaosti
Spergilkál
Byrjið á að saxa hvítlaukinn og laukinn smátt niður.
Þerrið bringurnar og saltið og piprið að utan.
Bræðið smjör á pönnu.
Steikið svo lauk og hvítlauk. Saltið og piprið lítilega.
Bætið svo einu fersku lárviðarlaufi á pönnuna (tveimur séu þau þurrkuð).
Skolið tómatana.
Sneiðið tómatana í helminga til að vökvinn fari hraðar úr þeim og blandist víninu og sósunni.
Bætið svo tómötunum og ólífunum út á pönnuna. Steikið í tvær til þrjár mínútur.
Hellið hvítvíninu saman við og sjóðið niður áfengið! Allir alvöru kokkar hefðu fengið sér smá sopa með en ég átti eftir að ná í Valdísi dóttur mína í sund svo ekkert varð úr því!
Hellið svo kjúklingasoðinu saman við og sjóðið upp. Sjóðið síðan niður um helming.
Fimm mínútum áður en kjúklingurinn er tilbúinn setjið þið kapers saman við. Skreytið með steinselju áður en rétturinn er borinn fram.
Með matnum drukkum við þetta ljúffenga hvítvín - ég bloggaði um það nýverið - ég hafði keypt nokkrar flöskur af því. Því var tilvalið að opna eina flösku með þessum rétti! Wolf Blass Yellow Label Chardonnay frá því 2011. Þetta er ástralskt vín. Létt og frískandi, ávaxtaríkt með sýrukeim. Þetta er fjórða, eða fimmta sinn, sem ég smakka þetta vín - og það svíkur ekki!
Þetta var einstaklega ljúffengur réttur með góðu jafnvægi! Þennan á ég eftir að gera aftur.
Núna, loksins núna, er kominn tími til að njóta!
Í bókinni minni er fullt af svona einföldum og ljúffengum uppskriftum. Önnur prentun er væntanleg í verslanir í næstu viku!
Saturday, 19 June 2010
Grasekkill bloggar: Spaghetti con burro e salvia e un bicchiere di vinobianco
Eins og stendur er ég grasekkill. Snædís og börnin mín fóru til Íslands núna á miðvikudaginn heilli viku á undan mér! Ég er með hefðbundna afsökun - ég þurfti að vinna. Mér bauðst í vor að vinna aftur í Helsingborg í íhlaupum sem nokkurskonar uppdubbaður sérfræðingur. Það var erfitt að hafna tilboðinu og í staðinn fékk ég ekki sumarfríið sem ég hafði hugsað mér að taka - en það er nú gaman í vinnunni. Nóg er af krefjandi verkefnum!
Sjálfur kem ég á til Íslands núna í næstu viku og ég er farin að hlakka mikið til. Ég var á Íslandi seinast í október í fyrra og gafst þá tækifæri til að hitta vini og ættingja og til að bregða mér á rjúpnaveiðar. Núna er aðeins annað upp á teningnum. Yndislegu foreldrar mínir, Lilja og Ingvar, ætla að halda upp á sextugs afmælið sitt upp í Kjós. Mamma varð sextug í janúar og pabbi verður sextugur í nóvember. Ég er alveg viss um að þetta verður glæsileg veisla. Ég fæ að aðstoða kokkinn og svo var ég fengin til að sjá um veislustjórn. Vonum það besta.
Ég held annars að ég hafi aldrei verið svona lengi einn heima síðan að ég gifti mig. Ég hef nokkrum sinnum farið einn í hérað - en það er einhvern vegin öðruvísi. Það er tómlegt að vera einn í húsinu. Ég ætla samt að reyna að vera duglegur. Elda góðan mat - fyrir einn. Það er í raun að mörgu að hyggja - garðurinn er fullur af verkefnum: slá grasið, reyta arfa, vökva, taka til í bílskúrnum og svo þrífa húsið. Ég verð ekki iðjulaus.
Spaghetti con burro e salvia e un bicchiere di vino bianco
Þessi réttur er eins einfaldur og hugsast getur. Hann er fullkominn fyrir þann sem er að elda fyrir einn!Fyrst er að rölta út í garð (eða búð) með skæri og klippa nokkur salvíulauf af búntinu sem vex í einu af kerjunum mínum. Síðan er bara að skella sér inn í eldhús og setja yfir vatn í stórum potti. Salta vel. Sjóða handfylli af pasta þar til al dente - Það er sérstaklega mikilvægt að pastað sé eldað al dente (aðeins undir tönn), það þarf að klára sína eldun í pönnunni og hafa getu til að sjúga upp smjörið/olíuna - þannig að það má alls ekki vera alveg mettað vatni.
Fimmtíu grömm af smjöri og skvetta af jómfrúarolíu er hitað á pönnu þangað til að smjörið freyðir og tekur örlítið að brúnast - þó ekki brenna. Þá er salvíunni hennt útí og henni leyft að "djúp" steikjast í smjörinu í nokkrar sekúndur. Þá er að bæta pastanu á pönnuna og blanda vel saman þannig að pastað hjúpist vel olíunni. Saltað vel og piprað. Fært yfir á disk og nóg af parmaosti rifin yfir heitt pastað. Njóta strax.
Þar sem ég var einn heima þá var ekkert annað að gera enn að fá sér hvítvínstár með. Eins og oft áður þá átti ég ágæta búkollu í ísskápnum - Drostdy Hof Chardonnay Voigner sem mér finnst vera alveg ansi vel lukkuð búkolla. Þetta er ekki flókið vín - langt í frá - en þetta er skarpt, þurrt, ávaxtaríkt og jafnvel aðeins smjörkennt - alveg eins og Chardonnay eiga að vera. Frábært til að fá sér tár þegar maður er hálfeinmanna einn heima!
Bon appetit!
Labels:
Drostdy Hof,
hvítvín,
salvía,
smjörsósa,
Spaghetti með salvíu
Location:
226 48 Lund, Sweden
Wednesday, 21 February 2007
Gufusoðin bleikja með grænmeti
Þessi uppskrift er að nokkru leiti fengin úr bók Rick Stein - Seafood. Rick Stein er breskur kokkur sem fyrir 30 árum síðan stofnaði fiskveitingahús í Padstow í Bretlandi. Hann varð fljótt afar vinsæll og vinsældir þessa veitingastaðar leiddu til þess að hann opnaði fleiri veitingastaði, gistihús og matreiðsluskóla. Hann byrjaði fyrir nokkrum árum í sjónvarpi og hefur gert nokkrar frábærar sjónvarpsseríur og gefið út nokkrar matreiðslubækur - sem ég á eitthvað af. Hann hefur verið með þætti sem leggja áherslu á sjávarfang en seinustu ár hefur hann verið að ferðast um Bretland og kynna breska matargerð - sem mörgum finnst ansi fátækleg - en er í raun alveg mögnuð. Eins og þið heyrið - þá fíla ég þennan kokk alveg í ræmur.
Bókin Seafood fjallar um hvernig umgangast á sjávarfang - hvernig á að verka það og svo fylgir fjöldinn allur af uppskriftum. Auðvelt er að læra hvernig á að matreiða fisk, ég hef gert nokkrar uppskriftir úr þessari bók og þær eru allar ofboðslega góðar.
Gufusoðin bleikja með grænmeti.
Bókin Seafood fjallar um hvernig umgangast á sjávarfang - hvernig á að verka það og svo fylgir fjöldinn allur af uppskriftum. Auðvelt er að læra hvernig á að matreiða fisk, ég hef gert nokkrar uppskriftir úr þessari bók og þær eru allar ofboðslega góðar.
Gufusoðin bleikja með grænmeti.
Fyrst voru 4 litlar gulrætur flysjaðar og niðursneiddar, svo 2/3 kúrbítur skorinn niður í sneiðar og svo í fernt, 1 rauðlaukur skorinn í sneiðar og svo 3 sellerí stangir í bita. Fyrst voru 5 smátt söxuð hvítlauksrif hituð í 10 gr af smjöri og olívuolíu og þegar hann var farinn að steikjast var grænmetinu skellt útáf. Steikt í smástund þar til það var gljáandi og þá var 1 glasi af góðu hvítvíni (Alsace - Gentil Hugel) sett útá grænmetið og soðið niður. Svo var 500 ml af kjúklingasoði hellt yfir. Saltað og piprað og soðið nær alveg niður - þannig að vökvinn rétt umlyki grænmetið. Svo er fjórum silungsflökum ca 120 gr hvert raðað ofan á. Saltað og piprað og niðurskornum basillaufum dreift yfir. Lækkað undir hitanum og látið malla (simmer) í ca 7-10 mínútur með lokið á - eða þar til bleikjan er tilbúinn.
Þá er bleikjan lögð á diska og smávegis af ferskum sítrónusafa er kreist yfir. Þvínæst er örlítil smjörklípa (10 gr) sett útí grænmetið/soðið á pönnunni og hitað hratt upp aftur. Við þetta þykkist sósan og verður gljáandi og falleg.
Grænmetinu og sósunni er síðan dreift yfir fiskinn og
er þetta borið fram með hrísgrjónum og smábrauðhleif.
Þetta er ákaflega góður réttur - eiginlega það góður að það mætti alveg bera hann fram sem aðalrétt í matarboði og allir væru glaðir.
Grænmetinu og sósunni er síðan dreift yfir fiskinn og
Þetta er ákaflega góður réttur - eiginlega það góður að það mætti alveg bera hann fram sem aðalrétt í matarboði og allir væru glaðir.
Njótið vel!
Labels:
bleikja,
gulrætur,
hvítvín,
kúrbítur,
rauðlaukur
Location:
226 48 Lund, Sweden
Subscribe to:
Posts (Atom)

