Sunday 28 June 2015

Fjölbreytilegar eggja "soufflé" í morgunsárið.


Ég er kominn í eins og hálfsárs starfsleyfi frá gigtardeildinni í Lundi. Við erum að fara flytja okkur aðeins um set og munum hafa vetursetu (og aðeins til) í Brighton í Englandi. Þar stefnir Snædís á framhaldsnám í sálfræði og ætlar að auka á þekkingu sína í hugrænni atferlismeðferð. Brighton þekki ég ágætlega þar sem ég bjó þar í eitt ár sem barn á meðan faðir minn, Ingvar, var í meistaranámi við sama skóla og Snædís er kominn inn í. Ég hef svo heimsótt borgina aftur síðan þá og höfum við heimsótt kollega minn, Roger Duckitt, nokkrum sinnum á síðustu árum.

Við munum semsagt flytja í lok ágúst og byrja nýtt líf. Börnin munu fara í skóla í Englandi, við erum búinn að ráða auper sem kemur afar vel fyrir. Ég mun starfa sjálfstætt sem ráðgjafi, kannski skrifa eitthvað, áreiðanlega elda eitthvað, vonandi huga eitthvað af rannsóknum og alveg öruggulega læra eitthvað nýtt. Ég er alveg ákveðin að fara á matreiðslunámskeið, kannski hjá Hugh Fearnley Whittingstall í The River Cottage eða hjá Rick Stein í Padstow. Kannski kem ég til Íslands í haust og held námskeið sjálfur í samstarfi við Salt Eldhús, hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér!

Fjölbreytilegar eggja "soufflé" í morgunsárið. 


Ég er afar hrifinn af eggjum. Egg eru næstum því hinn fullkomni matur - ótrúlega fjölbreytt og með eindæmum holl. Ég byrja næstum því hvern einasta morgun með því að snæða egg, stundum bara steikt upp úr smjöri - sunny side up, stundum over easy, oftast sem eggjahræru og einstaka sinnum sem ommilettu. Betra leið til að byrja daginn veit ég ekki!

Og fyrir þá sem hafa áhyggjur af kólesterólinu - gleymið því bara - egg eru holl, mettandi og full af vítamínum. Frábært veganesti úr í daginn.

Og - kaupið almennileg egg - ég fæ mín frá samstarfsmanni mínum á gigtardeildinni sem býr á bóndabæ og er með fjöldann allann af hænum og selur mér vikulega ljúffeng lífræn egg! Þau eru miklu betri á bragðið en egg frá búrhænum! Treystið mér!

Fyrir fjögur eggja"soufflé"

4 stór egg
70 ml rjómi
salt og pipar

Fyllingar

3 sneiðar af steiktu beikoni
Pepproni/salamisneiðar
niðurskornir tómatar
paprikusneiðar
Nóg af góðum osti



Ég keypti þessa dásamlegu tómata á grænmetismarkaðnum í gærmorgun. Ég elska að fara niður í bæ á laugardagsmorgun og versla nýtt ferskt grænmeti. Í gær keypti ég líka fersk jarðaber sem voru á tilboði eftir Jónsmessuna, rótargrænmeti, vaxbaunir og fullt meira!


Jæja, aftur að morgunverðinum. Brjótið fjögur egg í skál og hrærið rjómanum samanvið. Saltið og piprið og þeytið vandlega saman. Smyrjið síðan eldföstumótin með smá smjöri og raðið fyllingunum ofan í.

Alvöru soufflé innhalda meira en bara egg og rjóma (mjólk) - smá hveiti er alltaf sett saman við en ég sleppti því bara. Til að gera alvöru soufflé eru líka hvíturnar aðskildar og þeyttar upp og svo blandað saman við eggin til að gera soufflé-ið mjög loftkennt. En hér fór ég styttri leið.


Steikt beikon - klikkar ekki! 


Falleg rauð papríka í sneiðum.


Piparsalami - eða pepperoni! 


Blanda af þessum fallegu smátómötum.


Hellið síðan eggjablöndunni yfir og fyllið að 2/3. 


Svo er bara að raspa nóg af osti yfir. Ég notaði Västerbottenost sem er sérlega ljúffengur.


Eggjasouffle rísa mikið þegar þau bakast.


Breakfast of Champions!


Wednesday 17 June 2015

Il Timpano - troðfyllt pastabaka - úr kvikmyndinni Big night


     



Hugmyndina að þessari uppskrift fékk ég úr bíómyndinni Big night sem er óður til ítalskrar matargerðar og fjallar um tvo bræður sem reka veitingastað sem er að syngja sitt síðasta. Í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga staðnum efna þeir til veislu þar sem fjöldi dásemdarrétta er borinn á borð. Þar á meðal þessi réttur, Il Timpano, sem er innbakað pasta. Hann mun vera einn af uppáhaldsréttum eins aðalleikara myndarinnar, Stanleys Tucci, en móðir hans hefur gefið út matreiðslubókina Cucina & Famiglia þar sem þessa uppskrift er að finna.




Ef þið smellið á hlekkina þá færa þeir ykkur yfir á vefsvæði amazon.co.uk og hægt er að panta bókina með einum músarsmell!

Eldamennska eins og þessi er í raun talsvert viðamikið verkefni og það borgar sig að t aka sér hálfan dag í verkið. Fyrst þarf að laga pastað, svo sósuna, þá kjötbollurnar, raða öllum herlegheitunum upp og svo baka í ofni. Vonandi fær maður síðan hrós fyrir!



Ég eldaði þennan rétt fyrir ári síðan fyrir bókina mína - Veisluna Endalausu - en þá voru vinkonur Snædísar og kollegar, Sigrún Ása og Elva Brá, í heimsókn. Það var virkilega gaman að hafa þessar fallegu og skemmtilegu dömur í heimsókn.

Il Timpano - troðfyllt pastabaka - úr kvikmyndinni Big night

Fyrir átta til tíu


Fyrir pastað

800 g durum-hveiti
8 egg

Fyrir kjötbollurnar

500 g svína/nautahakk
1 egg
1 tsk fennelfræ
1 msk söxuð steinselja
1 msk söxuð basillauf
3 hvítlauksrif
2 ristaðar brauðsneiðar
1 msk jómfrúarolía
salt og pipar

Fyrir fyllinguna

heimagerð tómatsósa (sjá hérna)
2 egg til að pensla með
1 kúrbítur
3 ferskir mozzarella-ostar
6 soðin egg
salt og pipar

Byrjið á því að laga pastadeigið. Blandið durum-hveitinu og eggjunum saman í hrærivél í nokkrar mínútur. Hnoðið saman í þéttan klump, setjið í plast og svo inn í ísskáp í 30-60 mínútur.



Útbúið kjötbollurnar með því að setja hakkið í skál ásamt egginu, steyttum fennelfræjum, saxaðri steinselju, basil og hvítlauk, jómfrúarolíu, salti og pipar. Blandið vel saman. Ristið brauðsneiðarnar, tætið niður í matvinnsluvél og blandið saman við hakkið. Hnoðið hakkblönduna vandlega og útbúið fallegar bollur á stærð við golfbolta. Hitið olíu á pönnu og brúnið bollurnar að utan og setjið svo til hliðar. Geymið pönnuna með olíunni til að steikja pastað. Lagið tómatsósu eftir leiðbeiningum héðan.


Ég á fylgihlut á KitchenAid vélina mína sem er ansi sniðug. Með henni fylgja nokkur mót þannig hægt sé að gera nokkrar ólíkar tegundir af pasta, hægt er að kynnast pastapressunni betur á heimasíðu Einar Farestveits. 


Ég gerði fuzilli.


Og svo penne. 


Og svo nóg af pastarenningum til að hjúpa pottinn fyrir trommuna - il timpano. 


Hlutið pastadeigið í þrennt. Útbúið til dæmis fusilli úr fyrsta þriðjungnum, penne úr þeim næsta og svo langa og breiða renninga úr þeim þriðja. Sjóðið fusilli og penne í ríkulega söltuðu vatni í þrjár til fjórar mínútur og takið svo upp úr vatninu. Steikið aðra pastategundina í fitunni af kjötbollunum og blandið hinni við tómatsósuna.

Smyrjið eldfastan pott ríkulega með smjöri eða olíu. Leggið pastarenningana í pottinn þannig að botn hans og hliðar séu hjúpaðir með pasta og þannig að nóg pasta sé umfram til að brjóta yfir í lokin. Hrærið eggin saman og penslið pastað ríkulega.


Setjið eina tegund af pasta í botninn, raðið heilum eggjunum með og lokið síðan með tveimur pastarenningum. Penslið með eggjablöndunni.




Setjið næst lag af niðursneiddum kúrbít, mozzarella-osti og kjötbollum og svo annað lag af pastarenningum. Penslið með eggjablöndunni.




Setjið að lokum síðasta lagið af pastanu og fellið svo yfir pastarenningana sem stóðu út af til að loka kökunni alveg. Penslið með eggjablöndunni.


Setjið lokið á og bakið í 180 gráðu heitum ofni í 45-55 mínútur. Takið svo lokið af og bakið áfram í 10 mínútur. Takið réttinn úr ofninum og látið standa í 15 mínútur til að kólna áður en reynt er að snúa pottinum og losa pastakökuna (il timpano) úr pottinum.


Njótið með góðu salati.

Saturday 6 June 2015

Satay-kjúklingaspjót með hnetusósu í fertugsveislunni hennar Addýjar



Vinkona mín, Arnfríður Henrýsdóttir, átti stórafmæli nú í vikunni og ætlar í kvöld að halda upp á tímamótin með veislu. Mér skilst að öllu verði tjaldað til. Addý, eins og hún er ávallt kölluð, býr ásamt manninum sínum, Guðmundi, og öllum krakkaskaranum í næstu götu við okkur í Annehem í Lundi. Ég hjólaði við á leiðinni heim úr vinnunni í gærkvöldi og sá að undirbúningur var á fullu. Öll fjölskyldan hennar var mætt á svæðið til að hjálpa til með herlegheitin.

Ég tók að mér eitt smáverkefni til að létta undir; að elda nokkur kjúklingaspjót - ekkert sjálfsagðara! Ætla að gera tvennskonar spjót - þessi sem ég skelli í þessa færslun og svo tandoori spjót (sem fá að bíða betri tíma). Þessi uppskrift var í bókinni minni sem út fyrir síðustu jól, Veislunni Endalausu. 

Satay-kjúklingaspjót með hnetusósu í fertugsveislunni hennar Addýjar

Þennan rétt hef ég eldað margoft en af einhverri ástæðu aldrei sett hann inn á bloggið mitt. Þegar ég var yngri og var að byrja að búa keypti ég oft tilbúnar satay-sósur og hitaði þær bara. En þegar smekkurinn þroskaðist fór ég að djassa þær aðeins upp – blanda þær með kókosmjólk og ferskum chili-pipar. Og nú á seinni árum hef ég gert þær nokkrum sinnum frá grunni. Og það er lygilega einfalt.

Sumum gæti þótt hráefnislistinn ansi langur en þetta ætti allt að vera aðgengilegt fyrir áhugasama í næstu kjörbúð.

Fyrir fjóra

Fyrir kjúklinginn

1 kg kjúklingabringur
1/2 dós kókosmjólk 
3 msk hrein jógúrt 
3 hvítlauksrif 
5 cm engifer 
1 msk sambal oelek (chili-mauk) 
3 msk sojasósa 
1 msk fiskisósa 
1 tsk túrmerik 
1 tsk kóríanderduft safi úr einni límónu 
2 tsk dökkur muscovado-sykur 
salt og pipar 
handfylli kóríanderlauf til skreytingar


Fyrir hnetusósuna

1 bolli hnetusmjör 
2 msk sojasósa 
1 tsk sambal oelek 
1 bolli kókosmjólk
safi úr einni límónu
3 msk púðursykur
1 bolli salthnetur
1 1/2 bolli vatn
salt og pipar




Hrærið kókósmjólk og jógúrt saman í skál. Maukið hvítlauk og engifer og blandið saman við jógúrtina.  Bætið við sambal, sojasósu, fiskisósu, túrmeriki, kórí- anderdufti, límónusafa og sykri. Saltið og piprið. Skerið kjúklinginn í strimla og marinerið í leginum í ísskáp í þrjár til fjórar klukkustundir.  Leggið grillpinna í vatn í klukkustund áður en þið þræðið kjúklinginn upp á þá. 


Grillið síðan kjúklingaspjótin í gegn á blússheitu grilli í nokkrar mínútur.
 

Fyrir sósuna; Setjið hnetusmjör, sojasósu, sambal, kókósmjólk, vatn og safa úr einni límónu í pott og hitið yfir lágum hita í nokkrar mínútur. Saltið og piprið.  Merjið salthneturnar gróft í mortéli og bætið út í sósuna. Hitið varlega upp. Sósan á að verða þykk en gætið þess að hún brenni ekki við botninn.



Berið fram með basmati-hrísgrjónum og handfylli af ferskum kóríanderlaufum.

Jæja, best að fara að byrja að elda!