Showing posts with label kjúklingavængir. Show all posts
Showing posts with label kjúklingavængir. Show all posts

Sunday, 22 September 2013

Doktorsveisla í götunni: Þrjár snittur, salat í bolla, ostapinnar, kjúklingavængir og súkkulaðihjúpuð jarðarber


Í gærkvöldi vorum við boðin til veislu hjá Áskeli og Elvu. Þar var verið að fagna þeim áfanga að Áskell varði doktorsverkefnið sitt á föstudaginn og eftir þriggja klukkustunda vörn var hann sæmdur doktorsnafnbót! Ég náði því miður ekki að vera við vörnina en mér skilst að hann hafi staðið sig með mikilli prýði - enda ekki við öðru að búast - hann kann bara að gera hluti vel! 

Ég bauð fram hjálp í eldhúsinu og við hjálpuðumst að við snara fram smá veitingum fyrir kvöldið. Við ákváðum að hafa þetta einfalt. Nokkra smárétti - svona sitt lítið af hverju sem fólk gæti borðað standandi - jafnvel með glas í hönd. Við hittumst fyrr um daginn heima hjá þeim hjónum og brettum um ermarnar, ristuðum, smurðum, hristum og hrærðum. Meira segja dætur þeirra hjóna, Siv og Saga hjálpuðu til svo allt færi vel. 

Doktorsveisla í götunni: Þrjár snittur, salat í bolla, ostapinnar, kjúklingavængir og súkkulaðihjúpuð jarðarber!


Fyrsta skrefið var að sneiða niður fimm snittubrauð í þunnar sneiðar, pensla með jómfrúarolíu - salta og pipra og rista síðan í heitum ofni undir grillinu. 


Þessi var ljómandi góð; ferskt grænt pestó genovese með þykkri sneið af brie osti og svo blandaðar Kalamata ólífur. 


Þessi var einstaklega ljúffeng; með rauðu pestói, hvítlaukssalami, basillaufi og síðan pepperoni grilliata. 


Á þessa settum við ólívutapenade, ítalska hráskinku, klettasalat og svo niðurskorna sólþurrkaða tómata. 


Mér skildist á Elvu að hæfileikar Áskels í eldhúsinu væri vel nýttir við það að láta hann festa vínber og ólívur á ostana. Og það var kominn tími til að gera ostapinna aftur - þeir hafa ekki verið gerðir síðan 1982. En núna eru þeir mættir á svæðið aftur og þeir eru sérstaklega ljúffengir. 


Við vorum með sérlega ljúffengan ost - Västerbottenost - sem er bragðmikill, harður ostur sem eins og margur góður matur - varð til fyrir mistök. Hann er bara framleiddur í einni ostagerð hér í Svíþjóð. Hægt væri að nota hvaða ost sem er í staðinn - en um að gera að láta hann hafa hann bragðmikinn.

Vínber og ostur - hvað annað?


Og svo ostur og ólífur - klassíker! 


Gerðum líka kjúklingavængi. Hægt er að gera þá frá grunni eftir t.d. þessari uppskrift. Eða stytta sér leið og kaupa þá tilbúna - bara hita þá í ofni. Og bera þá svo fram með gorganzola-sýrðrjómasósu. 
150 gr af gorganzola osti var hrært saman við 500 ml af creme fraiche.


Hver segir að ekki sé hægt að gera salat að pinnamat? Hér vorum við með blönduð grænlauf með franskri dressingu (eitt hvítlauksrif, ein tsk djion, 100 ml olía og 25 ml balsmaik edik), litla plómutómata, mangó, gula papríku og grillaðan haloumi osti og svo smátt saxað basil og steinselju. 


Saga, yngri dóttir þeirra hjóna, var afar liðtæk í að hræra í súkkulaðinu. 300 gr af súkkulaði voru brædd í potti, 20 gr af smjöri og svo skvetta af rjóma. 


Berjunum var velt upp úr súkkulaðinu og sett í ísskápinn. Síðan bræddum við 100 gr af hvítu súkkulaði og slettum yfir með gaffli. 



Skál fyrir Áskeli og Elvu - takk fyrir okkur!

Tími til að njóta!

Thursday, 19 September 2013

Kryddaðir kjúklingavængir með kastala-gráðostasósu og niðurskornu grænmeti

Þegar ég var átján ára bjuggum við fjölskyldan í Toronto í Kanada. Þar var móðir mín í framhaldsnámi í kennslufræði og við áttum heima í úthverfi þessarar annars ágætu borgar. Ég eignaðist góða vini í skólanum og ein þeirra átti bíl. Við gerðum okkur einstaka sinnum ferð út á land og eitt sinn ókum við meðfram Ontario vatni suður til Niagara fossa. Við stoppuðum við Niagara fossa sem hljóta að vera mikil vonbrigði fyrir alla Íslendinga! Búið er að steypa kantinn sem fossinn rennur um og bærinn sjálfur en ein ömurlegasta túrista gildra sem völ er á. Eftir bátsferð upp að fossinum ókum við áfram suður yfir landamærin til Bandaríkjanna.

Það var stór munur að fara yfir landamærin. Gatnakerfið versnaði til mun á leiðinni til Buffalo. Þar stoppuðum við á einhverri knæpunni og pöntuðum - en ekki hvað - Buffalo vængi. Ég og Freyr vinur minn, sem bjó hjá okkur um þetta leyti, hesthúsuðum 75 vængi. Það var ekki lítið sem okkur tókst að borða á þessum árum án þess að það sæist á manni.

Um daginn fékk ég svo kryddaða kjúklinga og þá rifjaðist þetta upp fyrir mér - þetta er algert ljúfmeti. Og einfalt er það. Allavegana þessi uppskrift.

Þó verður að segjast um þessa uppskrift að hún er ekki mikið lík þeirri upprunalegu, þar sem kjúklingurinn er djúpsteiktur og síðan velt upp úr heitri kryddsósu. Í þessari uppskrift vel ég þá leið að marinera bitana í kryddaðri sósu og svo baka þá í ofni.

Kryddaðir kjúklingavængir með kastala-gráðostasósu og niðurskornu grænmeti

Hráefnalisti

3 kg kjúklingavængir

1 dós tacósósa
3 msk tómatpuré
3 msk sambal garlic
5 msk jómfrúarolía
2 tsk hvítlaukssalt
2 msk papríkuduft
2 tsk cheyanne pipar
Salt og pipar


Sósa
100 gr blámygluostur
50 gr rjómaostur
100 ml creme fraiche
Salt og pipar



Fyrst er að marinera vængina. Best er að marinera þá í ísskáp yfir nótt - en ef það gengur ekki má láta nokkrar klukkustundir duga. Ef fljótari leiðin er valin er kannski ekkert svo vitlaust að pensla kjúklingavængina rækilega með marineringunni áður en maður settur þá í ofninn.




Setti þrjú kíló af kjúklingavængjum, eina dós af tacósósu, þrjár matskeiðar tómatpuré, þrjár matskeiðar sambal garlic, fimm msk jómfrúarolíu, tvær tsk hvítlaukssalt, tvær msk papríkuduft, tvær teskeiðar cheyanne pipar og svo að lokum salt og pipar



Þetta fékk að marinerast yfir nótt í ísskápnum. 



Bakað í ofni við 200 gráður í 35-45 mínútur þangað til að þetta fer að taka fallegan dumbrauðan lit og eldhúsið ilmar dásamlega.

Með þessu finnst mér gott að bera fram niðurskornar gulrætur, sellerí og agúrku. 

Sósuna er síðan mjög létt að útbúa. Takið 100 gr af kastala eða öðrum góðum blámygluosti og stappið niður með 50 gr af rjómaosti og blandið 100 ml af creme fraiche. Hrærið vel saman. Viljið þið hafa sósuna meira fljótandi er bara að bæta meiri sýrðum rjóma saman við. 

Tími til að njóta!