Tuesday 11 September 2007

Hreindýrabollur með spínatkartöflumús og ljúffengri villisósu

Aftur á faraldsfæti. Núna liggur leiðin til Lisbon á Portúgal þar sem ég og kollegi minn erum á leið á námskeið í lyflækningum. Þetta er vikunámskeið þar sem fjallað verður um heilmargt sem snýr að lyflækningum. Þetta er í tíunda sinn sem þessi námstefna er haldinn og mun hún vera afar góð. Allavega hlakka ég mikið til. Reyndar á konan mín afmæli á meðan að ég er burtu þannig að ég þarf að finna eitthvað fallegt handa henni. Það verður vonandi vandræðalaust.

Fékk foreldra mína, bróður minn og tengdaforeldra í mat í gærkvöldi. Bróðir minn hafði óskað eftir því að eitthvað sérstaklega gott væri á borðum þannig að ég reyndi að láta hendur standa fram úr ermum.

Þetta er ný uppskrift af bollum. Ég hef áður sett hreindýrabolluuppskrift á netið sem var líka afar ljúffeng. Alveg þess virði að gera aftur en mig langaði til að reyna eitthvað nýtt - þannig að þessar bollur var afraksturinn. Það er lítið mál að nota annað kjöt en ég er nota - hreindýrakjöt er kannski ekki eitthvað sem allir eru með í frystinum. Ég hugsa að það væri vandræðalaust að nota gott nautahakk í staðinn, efast um að nokkur myndi steita hnefna vegna þess.

Hreindýrabollur með spínatkartöflumús og soðsósu

1,5 kg af hreindýrahakki er lagt í skál. Við það er hrært 1 smátt skorinn rauðlaukur, 1 smátt skorinn skarlottulaukur, 5 kraminn hvítlauksrif, 1/2 búnt af smátt skorinni salvíu, steinselju og garðablómbergi. Tveimur eggjum var bætt saman við, 6 mjólkurbleyttum brauðsneiðum, 5 msk af muldum valhnetum og ríkulega af salti og pipar. Þetta var svo hnoðað vel saman og látið standa í 2 klst. Kjötið var svo klipið niður í golfbolta stórar og steiktar á pönnu í skamma stund, þá er þeim raðað í eldfast mót og sett inn í heitanofn í 20 mínútur við 180 gráður.

Kartöflumúsin var einföld. 1,5 kg af kartöflum voru flysjaðar og soðnar eins og vant er. Þegar þær eru tilbúnar er vatninu hellt frá og þær stappaðar niður. Bætti við salti, pipar, 2 msk sykri, nokkrar sneiðar af gullosti, sirka 100 ml af mjólk/matreiðslurjóma. Svo er 100 gr af söxuðu spínati og hálft búnt niðurskornu basil bt saman við. Hrært vel saman.

Soðsósan var líka einföld en fremur tímafrek. Einn smátt skoinn laukur, 2 niðurskornar sellerí stangir, 4 smátt skorin hvítauksrif og 2 gulrætur voru flysjaðar og skornar niður. Þetta var svo steikt upp úr jómfrúarolíu þar til farið að glansa og þá var 1 L af vatni bætt saman við ogviðeigandi magni af villikrafti bætt útí. Soðið niður um helming og svo vatni bætt á og soðið niður aftur. Endurtekið eins og tími leyfir. Saltað og piprað eftir smekk. Þegar fer að líða að matnum er grænmetið sigtað frá og sósan þykkt með smjörbollu (30 gr af smjöri og smá hveiti sett í pott og hrært saman) og svo soðinu bætt rólega við og hrært á meðan. Sósan er svo djössuð upp eftir smekk, smá sulta, gráðaostur sé hann ti, kannski skvetta af góðu rauðvíni.

Maturinn er svo borin fram með góðu salati; klettasalat, tómatar, vínber, hnetur og kannski fetaostur. Með þessu er svo drukkið gott rauðvín og helst nokkrar tegundir af góðu rauðvíni.


1 comment:

  1. Meiriháttar góð uppskrift! Ég sleppti gullostinum, sem og sykrinum í kartöflumúsinni, því mér finnst rjómi og feitmeti fara illa með hreindýrakjöti. Sósuna bragðbætti ég með púrtvíni sem reyndist algjört sælgæti. Mér fannst umstangið í kringum sósuna ekkert mál. Á meðan hreindýrabollu-blandan beið í 2 klst, dundaði ég við að sjóða sósuna niður í tvígang. Börnin á heimilinu voru himinlifandi með kvöldmatinn.
    Hafðu þakkir fyrir algjöra verðlauna uppskrift ;)

    ReplyDelete