Wednesday 26 March 2008

Stórkostleg ofnbökuð smálúða með aspassalati og hrísgrjónum

salat2 Kominn heim. Ekkert er betra! Þó að það sé gott að vera í héraði þá er alltaf gott að koma heim. Ég umgengst fjölskylduna mína mikið, þeas foreldra mína og bróður, þannig að ég brá á þann leik að bjóða þeim í mat í kvöld. Mikið var gott að sjá þau aftur. Eftir svona matarveislu eins og páskarnir eru búnir að vera þá er gott að elda eitthvað annað en kjöt. Ég ákvað að elda fiskrétt.

Það var fallegt á heimleiðinni. Það var sól yfir Vopnafjarðarheiðinni og ökuferðin var ljúf. Dóttir mín spurði reglulega hversu langt væri á leiðarenda og ég var að reyna að útskýra fyrir henni hversu oft sem hún spyrði myndi litlu breyta salat1 um úrslitin. 140 km voru til Egilstaðarflugvallar sama hvað tautaði og raulaði. Það breytti þó ekki áhuga hennar um að spyrja.

Það er langt síðan að ég eldaði smálúðu - það verður að teljast í árum síðan að ég gerði þetta síðast. Ég fór í Fiskisögu í dag eftir að ég var búinn að spila skvass við Pál Pálsson, kollega minn. Ég ætlaði að kaupa þverskorna lúðusteik eins og ég gerði um daginn en lúðan sem í boði var var heldur gróf að sjá og þeir í búðinni mæltu heldur með smálúðunni sem ég og keypti. Og ekki var ég svikinn af því. Þeir mega eiga það herramennirnir sem afgreiða í Fiskisögu á höfðanum að þeir veita góða manni góða þjónustu.

smálúða Stórkostleg ofnbökuð smálúða með aspassalati og hrísgrjónum.

Einhver á eftir að andvarpa, vegna rjómaostsins, en það var ekki notað mikið og þetta deildist niður á sjö smálúðuflök - þannig að þetta var fremur léttur matur. Aspassalatið var ekki bara fallegt að horfa á heldur líka sérstaklega bragðgott. Seinnipartur mars og apríl er aðaltíminn fyrir aspas, þannig að hann ætti að vera góður núna - sá sem ég keypti í gær var góður en andskoti dýr. Fimm hundruð kall fyrir nokkra stöngla af aspas.

Lagði álpappír á ofnplötur. Setti smávegis af jómfrúarolíu á botninn og dreifði henni með pennsli. Saltaði og pipraði og lagði svo smálúða3 smálúðuflökin fremur þétt saman á plötuna. Næst skar ég niður 2 skarlottulauka, 4 hvítlauksrif og heilan kjarnhreinsaðan rauðan chilli fremur smátt og steikti upp úr 1 msk af jómfrúarolíu, steikti þetta við fremur lágan hita í nokkrar mínútur - þannig verður laukurinn og chilliinn sætur og góður. Því næst setti ég eina dós af hreinni jógúrt, einni dós af 5% sýrðum rjóma og svo hálfa öskju af rjómaosti með svörtum pipar. Saltaði og pipraði og setti síðan 2 teskeiðar af sykri saman við. Látið malla í smá stund. Þessari sósu var svo dreift yfir fiskinn ásamt smávegis af kapers. Rétturinn var svo bakaður við 200 gráður í 12 mínútur. Perfect. Nokkrum kóríanderlaufum var í lokið sáldrað yfir matinn rétt áður en hann var borin fram.

Með matnum var einfalt salat. Fyrst tók ég aspasinn og smálúða4 braut hann þannig að trénaði hlutinn var tekin frá. Saxaði 2 hvítlauksrif og hálfan skarlottulauk sem ég svo steikti í smávegis af jómfrúarolíu. Aspasinn var svo lagður á pönnuna í nokkrar mínútur. Saltað og piprað. Klettasalat var sett á disk, 1 púrrulaukur var saxaður gróft niður og svo var aspasnum raðað yfir eins og myndinn sýnir. Í lokin var parmesanostur rifinn yfir og nokkrum vínberjum dreift yfir salatið.

Borið fram með hrísgrjónum og baguette. Með matnum var drukkið afar gott hvítvín frá Wolf Blass. Presidents Selection Chardonnay frá því 2006. Við vorum sammála um þetta var einstaklega hentugt vín með þessum mat. Ég drakk sama vín fyrir viku síðan og fannst það passa betur með þessum mat en laxinum sem ég gerði fyrir viku. Þetta vín er frískandi og með talsverðu ávaxtabragði og smávegis eik. Ég naut vínsins sérstaklega vel með þessari máltíð. endalok máltíkðar


Saturday 22 March 2008

Saltfiskur arabiatta með hrísgrjónum og fersku salati

elda Við fjölskyldan lögðum land undir fót um páskahelgina. Bara við fjögur. Það er alltaf notalegt þegar maður dregur sig svona í hlé út úr borginni og kúra sig einhversstaðar niður. Fara í gönguferðir, ef veður leyfir, bíltúra, spila og borða góðan mat. Veðrið hefur aðeins verið að leika okkur grátt eins og aðra landsmenn og því vorum við mest inni fyrir í dag. Snædís bakaði vöfflur og vindurinn lamdi á glugganna. Dásamlegt. 

Maður er eiginlega dauðans feginn að það sé kominn löng páskahelgi og frí frá vel flestum fjármálafréttum. Fyrir þá sem eru að fara að flytja utan næsta haust eru öll tíðindi af fallandi gengi íslensku krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum nóg til að éta sundur magaslímhúðina á vöskustu mönnum. Og ég er ekki vaskasti maðurinn! 

Ég var eiginlega búinn að skipuleggja matseðill fyrir alla páskahelgina. Í gær var ljúffengur kjúklingapastaréttur. Í kvöld saltfiskur, á morgun gæsabringur, svo nautasteik og auðvitað páskalamb á páskadag. Vona að ég nái að koma flestu til skila. Mig rekur í minni að ég hafi áður sett á netið kjúklingapasta þannig að ég einbeiti mér að því að blogga saltfiskinn.   saltfiskur

Saltfiskur arabiatta með hrísgrjónum og fersku salati 

Arabiatta er fremur heit sósa sem er hefðbundið er notuð með pasta og er alveg ljúffengur réttur. Ég veit ekki hvort að mín útgáfa sé mjög lík þeirri sem þið kunnið að lesa í matreiðslubókum – það má vera – en ég er ekki með matreiðslubók með mér, er ekki nettengdur í húsinu okkar og þetta er einvörðungu gert eftir minni. Ég vona að púrítanar fyrirgefi mér þetta! 

800 gr af góðum saltfisk – ég er með þykk hnakkastykki – eru skorinn í fallega bita, hjúpuð með bragðbættu hveiti, 2 matskeiðar hveiti, salt og pipar og svo afar smátt skorinn steinselja )sett í poka og hrist vel saman - svo er hverju stykki fyrir sig sett í pokann og fiskurinn hjúpaður) og svo steikt á pönnu í kannski mínútu á hvorri hlið. Svo er fiskurinn færður í eldfast mót og bakaður við 180 gráður í 12 mínútur.  

Sósan var svona tómat-paprikusósa. 4 hvítlauksrif og hálfur kjarnhreinsaður chilli (barnvæn útgáfa – hetjur setja meira) steikt við lágan hita í smávegis af jómfrúarolíu. Þegar chillið og hvítlaukurinn er farin að mýkjast er einum fínt skornum rauðlauk bætt saman við og steiktur þar til mjúkur. Þá er heilli (fremur stórri) gróft skorinni rauðri papríku og steikt áfram þar til hún fer að mýkjast. Bætti einnig hálfri dós af ólífum skornum í helminga. Mikilvægt er að bæta smá salti og pipar saman við til að draga fram vökvann úr grænmetinu. Hálft glas af hvítvíni er sett saman við og svo einni dós af niðursneiddum tómötum bætt saman við (dósin svo aftur hálffyllt með vatni og bætt útí) og og suðunni leyft að koma upp. Saltað og piprað eftir smekk, bætti einnig 2 tsk af sykri saman við. Átti afgangs smávegis af þeyttum rjóma (eftir vöfflurnar hennar Snædísar) og setti 2 matskeiðar og hrærði vel. Leyft að sjóða á meðan annað var eldað.

Með matnum voru borin fram Jasmín hrísgrjón og ferskt salat, nokkrir kirsuberjatómatar, fetaostur og paprikubitar. Einnig fengum við okkur smátár af hvítvíni með matnum, núna var það Lindemans Chardonnay úr kassa. Bragðgott og frískandi en eftirbragðið í styttra lagi. Mjög gott af kassavíni að vera.


Monday 17 March 2008

Ljúffengur lax með hvítlauk, chilli og engifer með avókadó og tómata salati

skíði Eins og kom fram í seinustu færslu var ég að koma frá Austurríki þar sem ég var á skíðum fyrir rúmri viku síðan. Það er ekki lítið sem maður saknar þess að renna sér niður brekkurnar. Það er eitthvað dásamlegt við að láta sig líða niður hvítar brekkur í góðu veðri. Því miður missti ég af því að fara í Bláfjöll um helgina sem mér skilst að hafi verið dásamlegt. Ég skrapp hins vegar á árshátíð félags læknanema sem var alveg stórskemmtileg - læknanemar kunna að skemmta sér!

Á laugardaginn skrapp ég í gönguferð í góða veðrinu. Þar stoppaði ég í versluninni og kaffihúsinu Kaffifélaginu á Skólavörðustíg. Ég hef nokkrum sinnum verslað þarna áður og fengið góða vöru og góða þjónustu en á laugardaginn fékk ég framúrskarandi þjónustu og frábært kaffi. Ég keypti síðastliðið haust Rancilio Silvia kaffivél af versluninni Kaffiboð á Barónsstígnum. Skemmtileg verslun - aðeins opinn eftir hádegi, en ekki alltaf en einnig eftir pöntun. Mjög gaman að spjalla við hann Einar sem rekur þá verslun. Eftir því sem ég kemst næst rekur konan hans Kaffifélagið. Þar komst ég á bragðið með Cafe Ottolina. Cafe Ottolina er mitt uppáhaldskaffi, á því er engin vafi. Kannski fæ ég afslátt næst þegar ég kem þangað - hver veit?

Ég fékk ekki fyrir svo löngu nýjustu bók Nigellu Lawson - Nigella Express- skemmtileg bók þar sem áherslan er að elda góðan mat - hratt. Þó ég sé ekki mikið að flýta mér í eldhúsinu þá er stundum ágætt að ná að hasta þessu af skemmri tíma. Uppskrift ekki svo óbreytta þessari sá ég í þessari góðu bók. Nema þar var laxinn skorinn á annan máta og ekki var notaður hvítlaukur, chilli eða engifer né þessi ágæta kalda sósa sem ég bjó til sem var alveg ljúffeng.

lax3 Ljúffengur lax með hvítlauk, chilli og engifer með avókadó og tómata salati

800 gr af laxi var með roðinu var skorinn niður í fallegar sneiðar. Mikilvægt er að hafa roðið á þar sem steikt laxa roð er einstaklega gott á bragðið. Smávegis af jómfrúarolíu er smurt á laxinn og hann svo saltaður með Maldon salti og nýmöluðum pipar. Næst var 2 msk af grænmetisolíu og ein teskeið af ristaðri sesamolíu, sem ég fékk að gjöf nýverið, hituð á pönnu. Áður en að olían var farin að hitna var hálfum smáttskornum og kjarnhreinsuðum chilli pipar, 4 cm af smáttskornum engifer og svo þremur smáttskornum hvítlauksrifjum (núna er ég farin að skera allan hvítlauk - er að lesa bók eftir Anthony Bourdain, Kitchen confidential- og þar segir hann að hvítlaukspressur séu bara fyrir aumingja...ég sem á eina nýlega frá Kokku!). Þegar að laukurinn, chilli og engiferinn var farin að krauma, en ekki að taka lit - var laxinn færður á pönnuna roðið niður og steikt um stund. Þá var laxinum snúið og hann steiktur áfram í nokkrar mínútur þar til tilbúinn.

 Salatið var einfalt. Ég fékk blandað salat, lagði á disk. Skar tvo litla avókadó ávexti í sneiðar og lagði ofan á. Svo raðaði ég nokkrum krisuberjatómötum skornum í helminga, 2 tsk af smátt söxaðri steinselju og svo salatdressingu gerða úr; 1 msk jómfrúarolíu, safa úr hálfri sítónu, skvettu af hvítvínsediki, salti, pipar og svo 1/2 msk af hlynsírópi. Þetta var hrært vel saman og dreift yfir salatið.

lax2 Með matnum var sýrðrjómasósa - hálf dós af 10% sýrðum rjóma, 1,5 cm af engifer og eitt hvítlauksrif er saxað mjög smátt niður. Safi úr hálfi sítrónu. 1 msk af hlynsírópi. 2 tsk af smátt saxaðri ferskri steinselju, 1 tsk af hvítvínsediki og 1 tsk af jómfrúarolíu. Salt og pipar. Hrært vel saman og látið standa á meðan maturinn er útbúinn. Þannig ná öll þessi hráefni betra samspili og jafn sig. Smávegis af sósunni dreift yfir laxinn og svo skreytt með niðurskornum graslauk.

Með matnum var borin fram Jasmín hrísgrjón. Einnig nutum við Wolf Blass President Selection Chardonnay (vó - langt nafn - en gott vín). Þetta vín ku vera sérvalið af forstjóra fyrirtækisins. Frískandi og með talsverðu ávaxtabragði og smávegis eik. Verð í efri kantinum en virkilega þess virði.


Tuesday 11 March 2008

Penne með hreindýrakjöti, sveppum, tómata tapenade og rauðvíni

hreindýrapasta1 Komum frá Austurríki um helgina. Búinn að vera þar í viku í dásamlegu yfirlæti á Skihotel Speiereck sem er í Lungau héraði rétt hjá Salzburg. Þar eru Doddi og Þurí húsráðendur á fallegu litlu skíðahóteli sem er í litlum bæ sem heitir St. Michael sem liggur við rætur Speiereck fjalls í Ölpunum. Bærinn sjálfur er í 1075 m hæð og tindur fjallsins fer í ca 2400 m. Skíðaleiðin niður er um 12 km í heildina. Frábær. Skíðamennska í Austurríki sameinar þrjú af mínum helstu áhugamálum ef frá er talið skvass og eldamennska. Útivera, skíði og bjór...og það glæsilegt hve vel þessi þríeind á vel saman.

Eini gallinn við þetta allt saman er hversu stutt fríið var - vika er engan veginn nóg - það er á hreinu að næst þegar ég kem mun ég vera lengur. 10 dagar á skíðum er í mínum huga algert lágmark. Það að renna sér niður brekkurnar er hreint út sagt frábært. Mér tókst líka það sem ég ætlaði mér - að skíða utan brautar - ég get ekki sagt að ég hafi gert það með glæsibrag - en það tókst. Í púðursnjó nærri því upp að hnjám á fleygiferð niður fjallið í glampandi sólskini - ég bara veit ekki hvort að lífið verði eitthvað betra! - er það?

hreindýrapasta2 Nú er maður kominn heim aftur. Fréttirnar eins dapurlegur og hugsast getur. Gengið, markaðurinn, stýrivextir, veðrið, matarverð - díses - það eru allir eins og Grikkirnir til forna - heimur versnandi fer  - þetta er nóg til að brotlenda í raunveruleikanum. Maður verður bara að gera eitthvað til að lyfta sér upp - ég tala nú ekki um þegar maður er að brotlenda með íslensku krónunni. Rauðvín bætir alla vanlíðan. Þetta var svona comfort food!

Penne með hreindýrakjöti, sveppum, tómata tapenade og rauðvíni

600 gr af hreindýragúllasi var saltað og piprað og velt upp úr smávegis af hveiti þannig að það rétt hjúpaði bitanna. Klípa af smjöri og svo olíuskvetta var hitað í potti og svo var kjötið brúnað að utan. Þegar hjúpurinn var gullinn brúnn var hann fjarlægður úr pottinum. 5 hvítlauksrif, 2 sellerísstangir, 2 gulrætur og einn fremur stór laukur - var hreinsaður, flysjaður (eins og við átti) og smátt saxaður og steiktur í pottinum. Þegar grænmetið var farið að gljáa var kjötinu bætt saman við og hrært vel saman. Kjötið og grænmetið var steikt aðeins saman og þá var einni lítilli glerkrús af tómata tapende frá Sacla hrært saman við. Steikt áfram í smá stund. Þá er hálfri flösku af góðu rauðvíni bætt saman við - ég notaði Pinot Noir frá Oyster bay - gott vín! (það er oft talað um það að maður geti notað afgangsrauðvín í mat - þvílík þvæla - þetta er sama ruglið og þeir salat2 sem segja að mysa komi í stað hvítvíns - vilji maður fá góðan mat, þá notar maður gott hráefni...tala nú ekki um ef maður er að elda hreindýr. Þá bætti ég jafn miklu vatni saman við og lét suðuna koma upp með lokið á. Leyft að krauma í eina klukkustund. Þá er lokið tekið af pottinum og soðið aðeins niður. Núna er mikilvægt að smakka aðeins til. Ég þurfti að bæta aðeins vatni saman við til að fá meiri sósu, þá varð ég fyrir því að þynna aðeins bragðið og lagaði það með því að setja smá villibráðarkraft saman við. Saltað vel og piprað...smá rauðvínsskvetta.

Gott pasta er soðið í ríkulegu söltuðu vatni þar til að það er al dente. Þá er vatninu hellt frá og smávegis sósa sett í pottinn til að hjúpa pastað og fá það til að soga í sig bragðið úr sósunni.

salat Borið fram með bagettu og góðu salati gerðu úr klettasalati, höfðingja og vínberjum.

Með matnum drukkum við Wolf Blass Presidents Selection Cabernet Sauvignion frá 2004- eitthvað sem ég náði mér í á leiðinni til landsins. Við smjöttuðum vel og rækilega á þessu með matnum. Mjúkt en samt mikið vín sem fyllti munninn með löngu eftirbragði.


Monday 3 March 2008

Á fljúgandi ferð niður alpanna

Síðan verður í smá fríi næstu daga þar sem ég brá mér á skíði í Austurríki. Hef þó náð að koma mér bæði í kennslu á skíðum og í eldamennsku.

Með kveðju,

Ragnar